Biohit.com
Doctor
Ekki aðeins læknar og rannsóknastofur hagnast af því að nota GastroPanel. Sjúklingar hagnast einnig - smellið á lækninn til að fræðast meira

GERIST áSKRIFENDUR Að FRéTTABRéFINU

Gerist áskrifendur og fáið frekari upplýsingar um Gastropanel
Hætta í áskrift
stomach

Meltingarónot (dyspepsia) er algengt vandamál og talið að 20-40% fólks þjáist af þessum vanda. Þá leita 5-9% til lækna varðandi frekari úrlausnir eða um 15-26 þúsund manns árlega hér á landi.

Nú er í boði ný rannsóknaraðferð sem gefur vísbendingu um vefræna sjúkdóma í maga, en rannsóknin nefnist "Gastropanel" (Biohit).  Hún byggir að því að mæld eru fjögur efni í blóði þ.e. pepsinogen I, pepsinogen II, gastrin 17 og mótefni gegn bakteríunni Helicobacter pylori. Mat á mæligildum þessara efna gefur vísbendingu um hvort og þá hvaða vefrænan sjúkdóm er um að ræða t.d. magabólgur (antral gastritis, corpus gastritis) og þannig hjálpað til við að ákveða hvort þörf er fyrir frekari rannsóknir t.d. holsjárskoðun eða ekki.  Rannsóknir hafa sýnt að það má fækka holsjárskoðunum á efri meltingarvegi og spara þannig miklar fjárhæðir með þessari "skimunarrannsókn" sem er þriðjungi ódýrari og er minna inngrip en holsjárskoðun.  Þannig má hugsa sér að GastroPanel geti leyst ýmis vandamál sem tengjast meðferð meltingarónota og breytt þeim rannsóknum og bætt þeirri meðferð á H. pylori, atrophic gastritis og tengdum vandamálum, sem beitt er í dag.  Þá má líka spara "reynslu" meðferð (empirical treatment) sem er oft endurtekin á sjúklingum með meltingarónot.  Rannsókn þessi  verður  mun aðgengilegri fyrir lækna og sjúklinga almennt í heilsugæslunni og sérlega á landsbyggðinni, því hér er aðeins um blóðrannsókn að ræða og meðhöndlun sýna er hefðbundin.  Blóðsýnið verður reyndar að senda til rannsóknar á rannsóknarstofu, þar sem lagt verður mat rannsóknarniðurstöður, sjúkdómsgreiningu og ráðleggingar gefnar um frekari rannsóknir ef þörf er á.

Í Finnlandi hefur verið sýnt fram á að 8-12% af fólki yfir 40 ára eru með magabólgur eða atropic gastritis, sem eykur áhættuna á myndun gastric cancer, B12 skorts og sýrutengdum sárasjúkdómi eða ætisári.

Niðurstöður íslenskrar rannsóknar sýna að ábendingar fyrir holsjárskoðun vegna einkenna frá efri meltingarvegi er ónákvæmar og gildir einu hvort um er að ræða heilsugæslulækni eða sérfræðing í meltingarsjúkdómum.  Það er því þörf fyrir einfalda rannsókn sem skerpir  á ábendingu fyrir frekari rannsókn á efri meltingarvegi og getur fremur forðað viðkomandi frá óþarfa holsjárskoðun.  Þetta á sérstaklega við þá mörgu einstaklinga sem hafa óljós meltingarónot. Ýmislegt bendir til að við þessar aðstæður er GastroPanel eða Magagreinir "kjörrannsókn.